Sleipnir Live - Skálmöld

Sleipnir Live - Skálmöld

Год
2014
Язык
`Islandiešu`
Длительность
386310

Zemāk ir dziesmas vārdi Sleipnir Live , izpildītājs - Skálmöld ar tulkojumu

Dziesmas vārdi " Sleipnir Live "

Oriģinālteksts ar tulkojumu

Sleipnir Live

Skálmöld

Reiðskjótinn okkar er reisulegt hross

Runnin úr Ásgarði er hann

Skjannhvítt faxið er skínandi foss

Hann skeiðar við reiðar

Áttfættur fákurinn æðir um jörð

Alföður hnarreistur ber hann

Hermanni verða þá hæðir og börð

Og heiðar vel greiðar

Og hann mun mig bera á baki sér

Við berumst um vegi sem enginn fer

Klárinn er þýður og kræfur og stór

Krafturinn tekur fram vonum

Gáir þó að sér, er gæfur og rór

Um gjótur er fljótur

Aldrei hann sligast og engan hann slær

Sleipnir er nafnið á honum

Alls enginn fjandmaður sitja hann fær

Hans fótur er skjótur

Nú fljúgum við léttir um loftin blá

Hve landið er fagurt og margt að sjá

Hann viljugur ber mig á baki sér

Við Brynhildur förum hvar enginn fer

Ríða, rokka, róta, reiða

Líða, lokka, ljóta leiða

Blíða, brokka, blóta breiða

Skríða, skokka, skjóta skeiða

Skeiða, skokka, skríða

Breiða blóta, brokka, bíða

Leiða ljóta, lokka, líða

Reiða, róta, rokka, ríða

Ríða um slóða og róta hvern metra

Líða með góðum, ljóta skal betra

Bíða uns slotar og blóta við eldinn

Skríða í hnakk fararskjóta á kveldin

Skeiða á klárnum og skokka um heima

Breiða út faðminn og brokka og dreyma

Leiða þá sáru og lokka svo fjendur

Reiða loks stúlku og rokka um lendur

Vairāk nekā 2 miljoni dziesmu tekstu

Dziesmas dažādās valodās

Tulkojumu pakalpojumi

Augstas kvalitātes tulkojumi visās valodās

Ātrā meklēšana

Atrodiet nepieciešamos tekstus dažu sekunžu laikā